Sendið mynd
Mynd af núverandi hylki, vél eða krana segir okkur yfirleitt það sem þarf.
4 kg kolsýra fyrir fyrirtæki
Fullt 4 kg hylki inn, tómt hylki út. Fyrir vinnustaði sem eru nú þegar með sódavatnstæki, vatnsvél eða kolsýrðan krana og vilja sleppa við snattið.
Reiknivél
Setjið inn grófa notkun og sjáið hvað eitt 4 kg hylki getur dugað lengi. Þetta þarf ekki að vera nákvæmt, bara nógu gott til að byrja.
Miðað við að eitt 4 kg hylki gefi um 540 L af kolsýrðu vatni. Raunnotkun fer eftir vél, þrýstingi og hversu mikla kolsýru þið viljið.
Af hverju þetta virkar
Mörg fyrirtæki eru þegar með fína vél eða krana. Vandamálið er bara að kolsýran klárast, litlu hylkin tæmast fljótt og einhver þarf að muna eftir þessu.
Við byrjum á því einfalda: stærra hylki, skiptihylki og aðstoð með tengingar ef þarf. Þið sendið mynd af uppsetningunni og við sjáum hvað passar.
Þrjú skref
Mynd af núverandi hylki, vél eða krana segir okkur yfirleitt það sem þarf.
Ef það vantar slöngu, tengi eða þrýstijafnara hjálpum við að koma því í lag.
Þegar hylkið tæmist skiptum við á tómu og fullu. Þið þurfið ekki að gera ferð úr þessu.
Fyrir hverja?
Minna um smáhylki, plastflöskur og “hver átti að græja kolsýruna?” augnablik.
Stærra hylki fyrir krana, vatnsvélar og daglega þjónustu þar sem gasið má ekki klárast.
Kolsýrt vatn fyrir gesti og fundi án þess að einhver þurfi alltaf að redda hylki.
Pantanir
Hringið í 497 9900 og við skráum pöntunina.
Skannið QR kóðann við vélina þegar hylkið fer að tæmast.
Opna QR pöntunPantið, breytið upplýsingum og fylgist með þjónustu á Mínum síðum.
Fara á Mínar síðurNýtt: Aldrei tómt
Fyrir vinnustaði sem vilja hreinlega ekki þurfa að spá í kolsýruna: Við lærum á notkunartaktinn ykkar og komum með nýtt hylki áður en hitt klárast. Engar pantanir, ekkert stress, ekkert „hver átti að muna eftir þessu?“.
Við skráum hjá okkur hvenær við skiptum og sjáum þannig hversu hratt kolsýran klárast hjá ykkur. Til að byrja með miðum við líka við fjölda starfsfólks og reiknivélina hér að ofan.
Út frá taktinum ykkar skipuleggjum við næstu skipti með góðu svigrúmi. Þannig er alltaf komið nýtt hylki áður en það gamla tæmist.
Kolsýran er bara alltaf til. Ef notkunin breytist aðlagast áætlunin okkar sjálfkrafa við næstu skipti.
Þjónustan
Tómt breytist í fullt án þess að þið þurfið að hugsa mikið um það.
Við hjálpum með þrýstijafnara, slöngur og tengi ef uppsetningin kallar á það.
Við komum með hylkið á vinnustaðinn og tökum tóma hylkið með.
Þjónustan fylgir notkuninni. Ekkert flókið kerfi, bara sódi þegar þarf.
“Þú sérð um vatnið, við sjáum um sódann. Það virkar líka þegar hylkið er 4 kg.”
Sódavatn fyrir fyrirtækiSpurningar
Nei, ekki endilega. Þessi þjónusta er sérstaklega hugsuð fyrir fyrirtæki sem eru nú þegar með vél eða krana og vilja bara betra kolsýrufyrirkomulag.
Það fer eftir notkun, afhendingu og því hvort það vantar tengingar eða þrýstijafnara. Sendið okkur mynd og við reiknum þetta með ykkur.
Við skráum hjá okkur hvenær við skiptum um hylki og lærum þannig hversu hratt þið notið kolsýruna. Út frá því komum við með nýtt hylki með góðum fyrirvara, áður en hitt klárast. Þið þurfið hvorki að panta né spá í stöðuna.
Já. Sendið okkur upplýsingar um núverandi hylki og vél, og við finnum einföldustu leiðina yfir.
Já. Við getum aðstoðað með þrýstijafnara, slöngur og tengi þegar uppsetningin kallar á það.
Næsta skref
Við sjáum fljótt hvort 4 kg hylki passi og hvað þarf til að tengja það. Ef þetta gengur upp breytist tómt í fullt án þess að þið þurfið að gera stórmál úr því.
Senda mynd